PC viðgerðirGagnabjörgunNetlausnirVefsmíðiKennslaAfritun

Markmið okkar er að veita trausta og góða þjónustu, fagleg ráðgjöf við fyrirtæki og heimili, þar sem inntakið er að koma með þjónustuna til þín og leysa málið á staðnum. Setja upp og viðhalda netkerfum og tölvubúnaði, bjarga gögnum fljótt og vel. Við bjóðum einning uppá fjarvinnslu fyrir þá sem vilja fá þjónustu yfir internetið.

PC Tölvuviðgerðir (hug- og vélbúnaður) og vírusvarnir eru okkar aðalsmerki, við leggjum metnað okkar í gæði þjónustunnar ekki síður en gæði vörunnar.

Gagnabjörgun er nauðsynleg þar sem verðmæt gögn meiga ekki tapast, vönduð og örugg vinnubrögð.

Netlausnir í úrvali fyrir fyrirtæki og heimili, hvort sem er kapalkerfi eða háþróuð þráðlaus netkerfi, höfum við lausnina.

Sérfræði þjónusta og ráðgjöf varðandi uppsetningu á prenturum og plotterum. Uppsetning prentara og plottera á tölvunetum geta verið flókin og ekki á færi nema sérfræðinga í flestum tilvikum.

Vefsíðugerð fyrir alla, einfaldar og hagkvæmar lausnir geta verið jafn áhrifaríkar og þær dýrari og flóknari.

Vefvistun sem hentar allt frá einstaklingum til stórra fyrirtækja og stofnana. Hjá okkur er brotið blað hvað varðar vistun á .is lénum, við bjóðum .is lén á sama verði og erlend fyrirtæki eru að bjóða vistun á .com ofl. lénum.

Kennsla í margmiðlun, meðhöndlun mynda ofl. Komum á staðinn og kennum þér á þína eigin tölvu. Kennslan er sérstaklega sniðin að þínum óskum og kennt á þeim hraða sem hentar þér.

Gagnaeyðing fyrir stofnanir og fyrirtæki sem eru með mjög viðkvæm gögn. Gögnin eru þurkuð út samkvæmt alþjóðlegum staðli, þannig að ekki er hægt að finna þau aftur, jafnvel ekki með fullkomnustu tækni í gagnabjörgun.