TölvurÍhlutirNetbúnaðurHugbúnaður

      

Hugbúnaður fyrir öll verkefni, skrifstofuna, heimilið eða bara hvað sem er.  Að sjálfsögðu færðu hér öll helstu stýrikerfin og hugúnaðinn frá Microsoft, einnig nýja stýrikerfið Windows Vista, allar útgáfur á mjög góðu verði.

Office 2003, Office 2007 og Windows XP á tilboði með tölvum. Ef þú ert með Office 2003 eða Windows XP á tölvunni þinni, getur þú fengið íslenskt notendaviðmót  hér hjá Microsoft á íslandi.

Vírusvörn er nauðsinleg í nútíma tölvuumhverfi, tölvur þurfa að vera vel varðar fyrir utanaðkomandi árásum, við erum með allar helstu vírusvarnir, eldveggi og varnir gegn "Spyware", "Adware" og ormum. AVG er með viðurkenndar vírusvarnir og eldveggi fyrir fyrirtæki og einstaklinga á góðu verði, smelltu hér til þess að fá verð og lista yfir úrvalið. Uppfærsluréttur á hugbúnaði og vírus lista, fylgir með kaupum á AVG vírusvörnum. AVG Anti-Virus 7.5 var fyrst vírus-varnarforrita til þess að fá viðurkenningu sem 100% Windows Vista samhæft, "Checkmark Certification on Windows Vista Business Edition". Einnig fékk AVG Anti-Virus 7.5 eftirfarandi staðfestingu um gæði við leit á vírusum og spyware á Windows Vista, "GRISOFT announces that AVG Anti-Virus has received Virus Bulletin’s VB100 award for tests completed on Microsoft Windows Vista". Þetta staðfestir AVG enn og aftur sem eina fremstu vírusvörn í heimi og nú er útgáfa 8.0 og nýrri komið út.

Spyware, Adware og ormar er orðið jafn alvarlegt vandamál í tölvukerfum og vírusar. Þekkt vandamál sem fylgja "Spyware" og "Adware" er meðal annars, stuldur á persónu upplýsingum, tölvuvandamál, hægur Internet aðgangur, breyttar upphafssíður og fjöldinn allur af "pop-up" auglýsinga og klámsíðum. AVG er með allra bestu forrita sem völ er á til þess að halda tölvunni hreinni af þessum ófögnuði. Reynsla okkar af þessu forriti hefur verið mjög góð og mælum við hiklaust með þessari vöru, við alla tölvunotendur.

Fríar vírusvarnir og Adware tól geta verið ágæt til sýns brúks en eru langt frá því að vera eins góðar vörur og t.d. full útgáfa af "AVG". Stundum getur samt verið gott að sjá hverning þær virka til þess að hafa samanburð áður en keypt er. Hér er því frí vörn fyrir heimili og einstaklinga AVG Anti-Virus Free edition. Athugið að fríar varnir koma ekki í staðinn fyrir góðar keyptar varnir og notkun er algerlega á ábyrgð notanda.