logo

.
Sunday 05th of September 2010    

Heim Þjónusta
Þjónusta Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Markmið okkar er að veita trausta og góða þjónustu, fagleg ráðgjöf við fyrirtæki og heimili, þar sem inntakið er að koma með þjónustuna til þín og leysa málið á staðnum. Setja upp og viðhalda netkerfum og tölvubúnaði, bjarga gögnum fljótt og vel. Við bjóðum einning uppá fjarvinnslu fyrir þá sem vilja fá þjónustu yfir internetið.

PC Tölvuviðgerðir (hug- og vélbúnaður) og vírusvarnir eru okkar aðalsmerki, við leggjum metnað okkar í gæði þjónustunnar ekki síður en gæði vörunnar. Fjarþjónusta um allt land, við fyrirtæki og heimili. Tengjumst tölvum og netþjónum yfir internetið og framkvæmum eftirlit og viðgerðir, án þess að senda mann á staðinn. Hentar sérstaklega vel fyrir þá sem búa afskekt og eiga erfitt með að nálgast þjónustu á annan hátt.

Gagnabjörgun er nauðsynleg þar sem verðmæt gögn meiga ekki tapast, vönduð og örugg vinnubrögð.

Netlausnir í úrvali fyrir fyrirtæki og heimili, hvort sem er kapalkerfi eða háþróuð þráðlaus netkerfi, höfum við lausnina.

Þjónusta og ráðgjöf varðandi uppsetningu á prenturum og plotterum. Uppsetning prentara og plottera á tölvunetum geta verið flókin og ekki á færi nema manna með reynslu og þekkingu í flestum tilvikum.

Vefsíðugerð fyrir alla, einfaldar og hagkvæmar lausnir geta verið jafn áhrifaríkar og þær dýrari og flóknari. Sjáum um myndvinnslu og uppsetningu kynningarefnis fyrir vefinn.

Vefvistun sem hentar einstaklingum og fyrirtækjum. Hjá okkur er brotið blað hvað varðar vistun á .is lénum, við bjóðum .is lén á sama verði og erlend fyrirtæki eru að bjóða vistun á .com ofl. lénum.

Kennsla í margmiðlun, meðhöndlun mynda ofl. Komum á staðinn og kennum þér á þína eigin tölvu. Kennslan er sérstaklega sniðin að þínum óskum og kennt á þeim hraða sem hentar þér.

Afritun er mjög mikilvæt og ekki síst núna þegar upplýsingar og stafræn gögn eru oft það verðmæstasta sem fyrirtæki búa yfir. Heimili þurfa einnig að hugsa fyrir afritun á myndum fjölskyldunnar, þar sem eru geymd mjög verðmæt augnablik. Við setjum upp afritun á hagkvæmann og einfaldann máta. Sérsniðnar lausnir að þörfum hvers og eins.

Gagnaeyðing fyrir stofnanir og fyrirtæki sem eru með mjög viðkvæm gögn. Gögnin eru þurkuð út samkvæmt alþjóðlegum staðli, þannig að ekki er hægt að finna þau aftur, jafnvel ekki með fullkomnustu tækni í gagnabjörgun.

 
bottom

Keyrt á Joomla!. Designed by: Free Joomla 1.5 Template, mysql hosting. Valid XHTML and CSS.