Velkomin(n)! Prentvæn útgáfa

Velkomin(n) á heimasíðu Tölvur og gögn ehf.

Markmið okkar eru ávalt þau sömu, að vera með trausta og góða tölvuþjónustu við fyrirtæki og heimili, þar sem inntakið er að koma með þjónustuna til þín og leysa málið á staðnum. Setja upp og viðhalda netkerfum, tölvubúnaði, afritun á gögnum og gagnabjörgun. Tökum að okkur kerfisumsjón, umsjón með netþjónum og jaðarbúnaði. Gagnabjörgun í samvinnu við Ontrack er orðið eitt af okkar aðalsmerkjum. Uppsetning vírusvarna og vírushreinsanir. Tenging jaðarbúnaðar eins og netprentara, plottera ofl. Bilanagreining og tölvuviðgerðir eru fyrir hendi á verkstæði (skrifstofu) okkar í Mjódd. Við veitum faglega ráðgjöf varðandi heildarlausn í tölvumálum. Seljum borðtölvur, fartölvur, skjái, jaðartæki, íhluti og netbúnað, gæða vörur á góðu verði. Hjá okkur færðu alla rekstrarvörur fyrir HP prentara og tölvur.

Viltu uppfæra í Windows 7? Veitum ráðleggingar við uppfærslu og uppfærum allar gerðir tölva, svo framalega að vélbúnaður uppfylli skilyrði til þess. Afritum gögn milli tölva eða af tölvum yfir á gagnamiðla, ef þess þarf með. Við bjóðum einnig upp á uppsetningu á Suse og Redhat Linux kerfum. IBM og Novell hafa þróað Suse Linux kerfið og mælum við hiklaust með því.


Tölvur, tölvuviðgerðir fyrir PC og Apple Mac, viðhald og rekstur netkerfa fyrir fyrirtæki og heimili! Mætum á staðinn sé þess óskað eða vinnum verkið á verkstæði. Seljum tölvur, uppfærslur, íhluti og hugbúnað eins og vírusvarnir, Office, Windows ofl. á sanngjörnu verði. Notum viðurkenndan búnað við tölvuviðgerðir og gagnabjörgun, mikil þekking og reynsla.


Þjónusta og ráðgjöf varðandi uppsetningu á prenturum og plotterum. Uppsetning prentara og plottera á tölvunetum geta verið flókin og því best að leita ráðgjafar hjá fagmönnum strax varðandi tæki og lausnir í þessum málum, áður en ráðist er í fjárfestingar á búnaði.


Uppsetning á öruggum þráðlausum nettengingum! WEP dulkóðun er ekki örugg og auðvelt er að brjóta hana upp en hún er algengasti öryggisstaðallinn á Íslandi til læsingar á þráðlausum netkerfum. Við setjum upp öruggar læsingar þar sem eingöngu þeim tölvum sem ætlaður er aðgangur að netinu er heimilað að tengjast. Jafnvel þó WEP kóðinn sé brotinn upp, fær viðkomandi ekki aðgang að netinu. Við útvegum allann nauðsynlegan búnað og notum það besta.


Tilboð á HP tölvum og Microsoft Office 2010 hugbúnaði! Skoðið tilboðssíðuna okkar, HP fartölvur, tölvu- og hugbúnaður á eintöku tilboði hjá okkur. Við útvegum fyrirtækjum og heimilum, gæða vörur á góðu verði.


Spyware, Adware og Spam hrellir tölvur og tölvunotendur sem aldrei fyrr. Hjá okkur færðu mjög góðan og viðurkendann hugbúnað til þess að hreinsa þennann og annann álíka ófögnuð út af tölvunni og halda henni hreinni.


Fjarþjónusta yfir internetið. Einföld og ódýr aðferð til þess að fá aðstoð yfir internetið hvar sem þú ert á landinu. Lagfærum bilanir, uppfærum hugbúnað, hreinsum út virus ofl. allt með fjartengingu.


Gagnabjörgun og afritun. Eru gögnin töpuð? Var harði diskurinn forsniðinn (Format) eða settir þú inn Windows og allt þurrkaðist út? Ekki örvænta, þessu má bjarga og þeim gögnum sem þurrkast hafa út af diskunum þínum. Afritunarlausnir í úrvali, gerum áætlanir og setjum upp sjálfvirka afritun á gögnum og stýrikerfum.


Öryggishreinsun gagna. Hreinsum út af diskum gögn þannig að ekki er möguleiki að finna þau aftur, jafnvel ekki með nýjustu og bestu tækni í gagnabjörgun. Nauðsynlegt þar sem mikilvæg gögn meiga ekki komast í hendur á röngum aðilum. Nýjasta tækni samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.


Kennsla í margmiðlun, starfræn myndvinnsla, meðhöndlun mynda, brennsla á CD ofl. Kennsla á Office hugbúnað eins og Word, Excel, PowerPoint ofl. Komum á staðinn og kennum þér á þína eigin tölvu. Kennslan er sérstaklega sniðin að þínum óskum og kennt á þeim hraða sem hentar þér. Flestar tölvur hafa það sem til þarf við mynd- og skrifstofu-vinnslu en ef ekki, þá höfum við það sem þig vantar. Kennum gagnameðhöndlun og reglulega afritun gagna. Kennum á internetið, tölvupóst, ofl. ofl.


Hafðu samband við okkur með þín tölvumál og við veitum þér faglega og góða þjónustu.