Tölvuþjónusta / Netkerfi / Vefhönnun/ Vefvistun (hýsing) / Afritun

Meginmarkmið okkar er að vera með trausta og góða þjónustu við minni fyrirtæki og heimili, þar sem inntakið er að koma með þjónustuna til þín og leysa málið á staðnum. Setja upp og viðhalda netkerfum og tölvubúnaði. Við veitum faglega ráðgjöf varðandi heildarlausn í tölvumálum. Seljum fyrirtækjum og heimilum, gæða vörur á góðu verði.

Tölvur, tölvuviðgerðir, vírusvarnir, viðhald og rekstur netkerfa fyrir minni fyrirtæki og heimili! Mætum á staðinn sé þess óskað eða vinnum verkið á verkstæði. Seljum tölvur, uppfærslur, íhluti og hugbúnað á sanngjörnu verði. Greinum bilanir með háþróuðum búnaði frá Micro2000.

Sérfræði þjónusta og ráðgjöf varðandi uppsetningu á prenturum og plotterum. Uppsetning prentara og plottera á tölvunetum geta verið flókin og ekki á færi nema sérfræðinga í flestum tilvikum. Best að leita ráðgjafar hjá fagmönnum strax varðandi tæki og lausnir í þessum málum, áður en ráðist er í fjárfestingar á búnaði.

Uppsetning á öruggum þráðlausum nettengingum! WEP dulkóðun er ekki örugg og auðvelt er að brjóta hana upp en hún er algengasti öryggisstaðallinn á Íslandi til læsingar á þráðlausum netkerfum. Við setjum upp öruggar læsingar þar sem eingöngu þeim tölvum sem ætlaður er aðgangur að netinu er heimilað að tengjast. Jafnvel þó WEP kóðinn sé brotinn upp, fær viðkomandi ekki aðgang að netinu. Við útvegum allann nauðsynlegan búnað og notum það besta.

Tilboð á HP tölvum og Microsoft Office 2007 hugbúnaði! Skoðið tilboðssíðuna okkar, HP fartölvur, tölvu- og hugbúnaður á eintöku tilboði hjá okkur. Við útvegum fyrirtækjum og heimilum, gæða vörur á góðu verði.

Spyware, Adware og Spam hrellir tölvur og tölvunotendur sem aldrei fyrr.  Hér er hægt að fá mjög góðan og viðurkendann hugbúnað til þess að hreinsa þennann og annann álíka ófögnuð út af tölvunni og halda henni hreinni.

Fjarþjónusta yfir internetið. Einföld og ódýr aðferð til þess að fá aðstoð yfir internetið hvar sem þú ert á landinu. Lagfærum bilanir, uppfærum hugbúnað, hreinsum út virus ofl. allt með fjartengingu.

Gagnabjörgun og afritun.  Eru gögnin töpuð?  Var harði diskurinn forsniðinn (Format) eða settir þú inn Windows og allt þurrkaðist út?  Ekki örvænta, þessu má bjarga og flestum þeim gögnum sem þurrkast hafa út af diskunum þínum.  Afritunarlausnir í úrvali, gerum áætlanir, sjáum um afritun og geymslu á gögnum. Sjálfvirk afritun.

Öryggishreinsun gagna.  Hreinsum út af diskum gögn þannig að ekki er möguleiki að finna þau aftur, jafnvel ekki með nýjustu og bestu tækni í gagnabjörgun.  Nauðsynlegt þar sem mikilvæg gögn meiga ekki komast í hendur á röngum aðilum. Nýjasta tækni samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.

Vefvistun (hýsing) og vefsíðugerð fyrir einstaklinga og fyrirtæki.  Erum með einfaldar, ódýrar og góðar lausnir fyrir alla. Útlit vefs er hannað eftir óskum hvers og eins eða notað er staðlað form. Vistunm .is lén á sama verði og önnur lén, ótrúlaga gott verð og gæði, hentar allt frá einstaklingum til stórra fyrirtækja. Pantið vefvistun (hýsingu) á www.Vefvistun.net  eða sendið okkur póst á togg@togg.biz og fáið nánari upplýsingar.

Kennsla í margmiðlun, starfræn myndvinnsla ofl.  Komum á staðinn og kennum þér á þína eigin tölvu. Kennslan er sérstaklega sniðin að þínum óskum og kennt á þeim hraða sem hentar þér. Flestar tölvur hafa það sem til þarf við myndvinnslu en ef ekki, þá höfum við það sem þig vantar.

 

Upplýsingar

Ef þig vantar nánari upplýsingar um vörur okkar (tölvur, íhluti ofl.) eða þjónustu, vinsamlega hafðu samband í síma eða með tölvupósti.

Sími
696 3436
Heimilisfang
Þarabakka 3, 109 Reykjavík
2.h. fyrir ofan Glitni í Mjódd
Tölvupóstur
Vörur og verð: Tölvur og gögn ehf.
Þjónusta:
Ævar B. Jakobsson
 
Vefvistun
Vefvistun á frábæru verði, vistum .is lén (domain) á sama verði og önnur lén: VEFVISTUN.NET